Hoppa yfir valmynd
Úrskurðarnefnd velferðarmála - Atvinnuleysistryggingar og vinnumarkaðsaðgerðir

Mál nr. 87/2009

Úrskurður

Á fundi úrskurðarnefndar atvinnuleysistrygginga og vinnumarkaðsaðgerða þann 21. janúar 2010 var kveðinn upp svohljóðandi úrskurður í máli A nr. 87/2009.

1.

Málsatvik og kæruefni

Málsatvik eru þau að með bréfi, dags. 19. maí 2009, tilkynnti Vinnumálastofnun kæranda, A, að Vinnumálastofnun hafi á fundi sínum þann 7. maí 2009 fjallað um umsókn kæranda um atvinnuleysisbætur frá 23. mars 2009. Fallist var á umsókn kæranda en réttur hans til atvinnuleysisbóta var felldur niður í 40 daga í upphafi bótatímabils með vísan til 1. mgr. 55. gr. laga um atvinnuleysistryggingar, nr. 54/2006, sbr. c-lið 3. gr. laganna, þar sem hann hætti í námi. Kærandi vildi ekki una þeirri ákvörðun og kærði hana til úrskurðarnefndar atvinnuleysistrygginga og vinnumarkaðsaðgerða með erindi, dags. 6. ágúst 2009. Vinnumálastofnun krefst þess að hin kærða ákvörðun verði staðfest.

Kærandi var skráður í nám í Tækniskólanum í húsasmíði á vorönn 2009 en hætti námi í febrúarbyrjun. Hann kveðst hafa hætt námi vegna þess að hann hafi ekki talið sig hafa valið fag sem hentaði sér. Í ódagsettu bréfi frá Tækniskólanum, sem kallast námsferilsáætlun nemanda, kemur fram að nemandi sé hættur í námi. Kærandi sótti um atvinnuleysisbætur 23. mars 2009. Í bréfi B, dags. 29. nóvember 2009, sem ritað er fyrir hönd kæranda, kemur fram að Vinnumálastofnun virði í engu þá staðreynd að kærandi leitaði ekki strax á atvinnuleysisskrá og spyr ekki hvað hann hafi gert á þeim 50 dögum frá því að náminu lauk og þangað til hann skráði sig á atvinnuleysisbætur. Sá tími sem leið frá því kærandi hætti námi og fram að þeim degi er hann skráði sig atvinnulausan bendi ekki til þess að markmiðið hafi verið að fá atvinnuleysisbætur. Í lögum um atvinnuleysistryggingar komi ekkert fram hvernig stofnunin geti beitt 40 daga refsiákvæðinu, hvort það eigi að vera frá skráningu eða þeim tíma sem viðkomandi hættir námi. Fullyrðing lögfræðinga Vinnumálastofnunar um að kærandi hafi ekki haft fullgildar ástæður til að hætta námi sínu skipti ekki máli enda líklegt að löggjafinn hafi ekki haft svipað tilvik í huga. Kærandi gerir þá kröfu að þeir 40 dagar sem Vinnumálastofnun ákvað að hann væri án bóta verði virtir inni í þeim 50 dögum sem liðu frá því að hann hætti námi og fram að þeim degi er hann skráði sig atvinnulausan.

Í greinargerð Vinnumálastofnunar, dags. 19. október 2009, er vitnað til 1. mgr. 55. laga um atvinnuleysistryggingar og bent á að í athugasemdum við umrædda grein frumvarps til laga um atvinnuleysistryggingar komi skýrt fram að eðlilegt sé að þeir sem hætti námi án þess að hafa til þess gildar ástæður sæti sams konar biðtíma og þeir sem hætti störfum án gildra ástæðna, sbr. 54. gr. frumvarpsins. Orðalagið „gildar ástæður“ hafi verið skýrt þröngt sem hafi þýtt í raun og veru að fá tilvik falli þar undir. Tilvik á borð við heilsubresti og búferlaflutninga hafi verið talin falla undir orðalagið en ástæður líkt og kærandi lýsi, þ.e. að nám í húsasmíði hafi ekki átt við hann, hafi ekki verið talin falla undir skýringuna á gildum ástæðum. Tilgangur laga um atvinnuleysistryggingar sé að tryggja þeim sem tryggðir séu og misst hafa fyrra starf sitt tímabundna fjárhagsaðstoð í þrengingum sínum. Beri því að gera ríkar kröfur til þeirra sem segi upp störfum sínum eða hætta námi sínu, um að hafa til þess gildar ástæður samkvæmt lögunum enda eigi almennt ekki að þiggja atvinnuleysisbætur í stað þess að stunda nám eða gegna launuðu starfi.

Kæranda var með bréfi úrskurðarnefndarinnar, dags. 20. október 2009, sent afrit af greinargerð Vinnumálastofnunar og gefinn kostur á að koma á framfæri frekari athugasemdum fyrir 3. nóvember 2009. Úrskurðarnefndinni barst bréf B, dagsett 29. nóvember 2009, fyrir hönd kæranda, með athugasemdum.

2.

Niðurstaða

Mál þetta lýtur að túlkun á 1. mgr. 55. gr. laga um atvinnuleysistryggingar en hún er svohljóðandi:

„Sá sem telst tryggður samkvæmt lögum þessum en hefur hætt námi, sbr. c-lið 3. gr., án gildra ástæðna skal ekki eiga rétt á greiðslu atvinnuleysisbóta skv. VII. kafla fyrr en að 40 dögum liðnum, sem ella hefðu verið greiddar bætur fyrir, frá móttöku umsóknar um atvinnuleysisbætur. Staðfesting frá viðkomandi skóla um að námi hafi verið hætt skal fylgja umsókninni.“

Í athugasemdum við 55. gr. í frumvarpi til laga um atvinnuleysistryggingar segir að eðlilegra þyki að þeir sem hætta í námi án þess að hafa til þess gildar ástæður þurfi að sæta sams konar biðtíma og þeir sem hætti störfum án gildra ástæðna, sbr. 54. gr. frumvarpsins. Skipti þá ekki hvenær á námsönn hlutaðeigandi hætti námi. Gert sé ráð fyrir að vottorð frá hlutaðeigandi skóla um að hann hafi hætt námi fylgi umsókninni. Að öðru leyti er vísað til athugasemda við 54. gr. frumvarpsins. Þar segir að nefnd er fjallaði um efni laganna hafi tekið afstöðu til þess hvað gætu talist gildar ástæður og komist að þeirri niðurstöðu að það væri erfiðleikum bundið að skilgreina nákvæmlega slíkar ástæður í lögum og reglugerðum þar sem ástæður þess að fólk segi störfum sínum lausum eða missi þau geti verið af margvíslegum toga. Því sé lagt til að lagaregla þessi verði áfram matskennd og Vinnumálastofnun sé þar með falið að meta hvernig atvik og aðstæður þess máls er fyrir henni liggur falli að umræddri reglu. Stofnuninni beri því að líta til almennra reglna og málefnalegra sjónarmiða við ákvarðanir um hvort umsækjendur um atvinnuleysisbætur skuli sæta biðtíma eftir atvinnuleysisbótum.

Í kæru sinni til úrskurðarnefndar segir kærandi að hann hafi skráð sig í húsasmíðanám í upphafi árs 2009 þar sem Iðnskólinn hætti við að bjóða upp á nám í hljóðtækni. Húsasmíðin hafi því ekki verið vel úthugsuð ákvörðun. Skömmu síðar hafi kærandi komist að því að það hafi ekki verið rétt valið og því sjálfhætt. Að mati úrskurðarnefndarinnar telst slík ástæða ekki til gildrar ástæðu fyrir því að hætta námi.

Í framangreindu ákvæði 55. gr. laga um atvinnuleysistryggingar er skýrt tekið fram frá hvaða tímamarki reikna skuli 40 daga biðtíma og er ekkert svigrúm gefið í ákvæðinu. Sú staðreynd er óumdeild að kærandi sótti um greiðslu atvinnuleysisbóta þann 23. mars 2009. Með vísan til ákvæðisins er sú niðurstaða Vinnumálastofnunar að miða upphaf biðtíma við þá dagsetningu því rétt og er óheimilt samkvæmt ákvæðinu að miða við aðra dagsetningu.

Hin kærða ákvörðun er staðfest.

 

Úrskurðarorð

Hin kærða ákvörðun Vinnumálastofnunar frá 7. maí 2009 í máli A er staðfest.

 

 

Brynhildur Georgsdóttir, formaður

Hulda Rós Rúriksdóttir

Helgi Áss Grétarsson




Úrskurðir, ákvarðanir og aðrar úrlausnir sem birtast á vef Stjórnarráðsins eru á ábyrgð viðkomandi stjórnvalds. 
Stjórnarráðið ber ekki ábyrgð á efni frá sjálfstæðum stjórnvöldum umfram það sem leiðir af lögum.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum